Á næstu dögum verður ný könnun um líðan starfsfólks í orku- og veitugeiranum send út. Könnunin er send á allt starfsfólk tólf stærstu orku- og veitufyrirtækja landsins. Könnunin er liður í því að kanna stöðu jafnréttismála innan fyrirtækjanna og opna á samtal um framtíðarsýn öllum kynjum til hagsbóta.
Konur í orkumálum hafa staðið fyrir tveimur könnunum um líðan kvenna í geiranum sem hafa gefið mikilvæga innsýn í upplifun kvenna á starfsumhverfi sínu. Sú nýjung er á könnuninni í ár að félagið leggur könnunina fyrir öll kyn.
Könnunin er framkvæmd af Prósent sem framkvæmdi jafnframt eldri kannanirnar og er gert ráð fyrir að hún standa yfir í tvær vikur. Niðurstöðurnar verða síðan kynntar á viðburði KÍO sem verður auglýstur síðar.
Markmið þessa mælinga er að fá fram viðhorf og skoðun sem flestra og skapa þannig tækifæri til áhrifa og umbóta í okkar starfsumhverfi. Góð þátttaka allra sem fá könnunina senda skiptir því máli fyrir málstað félagsins sem er að stuðla að jafnrétti og auka áhrif kvenna innan orku- og veitugeirans.