Viðburðurinn „Ársfundur Orkustofnunar 2019“ hlýtur jafnréttisstimpil KíO

30. mars 2019

Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði Orkustofnunar „Ársfundur Orkustofnunar 2019“ sem haldinn er 3. apríl  nk.  og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum. 


Við óskum Orkustofnun til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða í orkugeiranum.

Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.


Nánar um Ársfundur Orkustofnunar 2019:

https://orkustofnun.is/orkustofnun/um-orkustofnun/arsfundir/arsfundur-2019/


Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins.

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram