Viðburðurinn „Vorfundur Landsnets 2019 – ​Hvað slær út þjóðaröryggi? Framtíð íslenska raforkumarkaðarins“ hlýtur jafnréttisstimpil KíO

6. mars 2019

Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði Landsnets „Vorfundur 2019 – Hvað slær út þjóðaröryggi? Framtíð íslenska raforkumarkaðarins“ sem haldinn er 12. mars nk.  og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum. 


Við óskum Landsnet til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða í orkugeiranum.


Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.


Nánar um Vorfund Landsnets 2019 – Hvað slær út þjóðaröryggi? Framtíð íslenska raforkumarkaðarins:

https://www.landsnet.is/um-okkur/utgafa-og-samskipti/frettir/stok-frett/2019/03/12/Langtimahugsun-skilar-auknu-oryggi-/​


Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins.

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram