Viðburðurinn „Vorfundur JHFÍ 2019 – Auðlindarannsóknir og eftirlit“ hlýtur jafnréttisstimpil KíO

11. apríl 2019

Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði Jarðhitafélags Íslands „Vorfundur 2019 – Auðlindarannsóknir og eftirlit“ sem haldinn er 29. apríl nk. og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum.

Við óskum Jarðhitafélagi Íslands til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða í orkugeiranum.

Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.

Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram