Viðburðurinn „Orkumarkaðir í mótun: Verðmætasköpun og þjóðarhagur“ hlýtur jafnréttisstimpil KíO

9. janúar 2019

Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði Landsvirkjunar „Orkumarkaðir í mótun: verðmætasköpun og þjóðarhagur“ sem haldinn er 15. jan. nk.  og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum.


Við óskum Landsvirkjun, til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða í orkugeiranum.


Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.


Nánar um viðburðinn, Orkumarkaðir í mótun

Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins.

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram