Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburði Samtaka Iðnaðarins „Útboðsþing SI – Verklegar framkvæmdir 2019“ sem haldinn er 24. jan. nk. og gleðst yfir því að þar er jafnvægi í kynjahlutfalli framsögumanna. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum.
Við óskum Samtökum Iðnaðarins til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða í orkugeiranum.
Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða viðburð.
Nánar um Útboðsþing SI – Verklegar framkvæmdir 2019:
https://www.si.is/starfsemi/vidburdir/2019/01/24/eventnr/1590
Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins