Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburðinum “Þjóðhagsleg hagkvæmni rafbílavæðingar” sem haldinn er 1. nóv. nk. og gleðst yfir því að kynjajafnrétti sé í hávegum haft. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í Orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í Orkumálum.
Við óskum Samorku, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Grænu orkunni – samstarfsvettvang um orkuskipti, Íslenskri NýOrku og Orkusetri, sem að viðburðinum standa, til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða.
Við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan áhugaverða og vandaða viðburð.
Dagskrá og skráning er á heimasíðu Samorku
Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpill KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins: