Árshátíð Kvenna í orkumálum verður haldin með pomp og prakt þann 21. apríl á Sæta svíninu!
Hvar: Sæta svínið Gastropub, Hafnarstræti 1-3, Reykjavík
Hvenær: Fordrykkur hefst kl. 18:30 og 3 rétta hátíðarkvöldverður kl. 19:30.
Hvað: Á dagskránni er uppistand með engri annarri en Vigdísi Hafliðadóttur leikkonu og söngkonu hljómsveitarinnar FLOTT! Einnig skemmti-pöbbkviss og karíókí fyrir söngþyrsta!
Hver: Allt félagsfólk Kvenna í orkumálum er velkomið.
Skráning og matur: Sætafjöldi er takmarkaður, fyrst koma, fyrst fá! Hér skráir þú þátttöku þína og val á matseðli.
Kostnaður: 7.900 kr. Krafa birtist í heimabanka þeirrar kennitölu sem þú skráir. Hafðu samband á konuriorkumalum@gmail.com ef þú óskar eftir kvittun.
Hlökkum til að njóta gleðinnar með ykkur!
Stuðkveðjur frá stjórnarkonum KÍO