Umhverfisdagur atvinnulífsins hlýtur Jafnréttisstimpil KíO

10. október 2018

Stjórn KíO hefur skoðað skiptingu kynja meðal fyrirlesara og fundarstjóra á viðburðinum “Umhverfisdagur Atvinnulífsins” (og tengdum málstofum) sem haldinn er 17. okt. nk.  og gleðst yfir því að kynjajafnrétti sé í hávegum haft. Þessi viðburður hlýtur því Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum fyrir að vera Viðburður í Jafnvægi en til að hljóta stimpilinn þarf viðburður að uppfylla ákveðin fyrirfram skilgreind viðmið sem finna má hér á heimasíðu Kvenna í orkumálum.


Við óskum SA, Samorku, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu, sem að viðburðinum standa, til hamingju með Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Skipuleggjendur viðburðarins hafa sýnt jafnrétti í verki með skipulagi þessa viðburðar og eruð þar með fyrirmynd annarra sem koma að skipulagi viðburða.

Umhverfisdagur Atvinnulífsins er árlegur viðburður. Þar eru veitt Umhverfisverðlaun Atvinnulífsins og hafa fyrirtæki í orkugeiranum hlotið verðlaun fyrir bæði Framtak ársins (Landsnet 2017) og Umhverfisfyrirtæki ársins (ON 2015). Yfirskrift viðburðarins í ár er Samkeppnishæfni og við hvetjum félagskonur og -menn til þess að sækja þennan viðburð.

Dagskrá og skráning er á vef SA:
https://sa.is/frettatengt/vidburdir/umhverfisdagur-atvinnulifsins-2018

Nánari upplýsingar um verkefnið „Viðburður í jafnvægi – Jafnréttisstimpil KíO“, má finna hér á heimasíðu félagsins:
https://www.konuriorkumalum.is/jafnrettisstimpill

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram