Hausthristingur KÍÓ fór fram í Höfuðstöðinni þann 10. september og markaði upphafið að nýju starfsári. Það var einstaklega ánægjulegt að koma saman á ný eftir sumarið, hitta kunnugleg andlit og kynnast nýjum konum úr orkugeiranum.
Stemningin var frábær og boðið var upp á einstaklega glæsilegar veitingar frá Iceland Picnic. Kvöldið gaf gott tækifæri til að spjalla, efla tengslanetið og njóta samverunnar í góðum félagsskap.
Við í stjórn KÍÓ erum afar ánægðar með fyrsta viðburð starfsársins og þökkum öllum þeim sem komu og gerðu kvöldið eftirminnilegt. Við hlökkum mikið til komandi viðburða og alls þess sem er framundan hjá KÍÓ í vetur.
Leyfum myndunum að tala sínu máli.




















Framundan er spennandi og viðburðaríkt haust hjá KÍÓ. Fjölbreyttir viðburðir gefa okkur konum í orkumálum tækifæri til að kynnast betur, efla tengslanetið og eiga góðar stundir saman. Við hvetjum ykkur því til að taka dagsetningarnar frá strax og hlökkum til að sjá sem flestar í vetur.

Um síðustu áramót var gerð óformleg könnun á kynjahlutföllum innan sex stærstu fyrirtækja í íslenska orkugeiranum.
Karlar eru í meirihluta í flestum starfshópum, en kynjahlutföll eru nær jöfnuði í framkvæmdastjórnum fyrirtækjanna. Mestur er munurinn meðal iðnmenntaðs fagfólks, þar sem konur eru aðeins 4%.
Niðurstöður könnunarinnar má sjá hér fyrir neðan.
Þann 6.maí var haldinn viðburðurinn Mótum framtíðina – sögur, störf og tækifæri kvenna í orkugeiranum.
Viðburðinn opnaði Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, með erindi um tækifæri kvenna í orkugeiranum. Því næst fjallaði Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum, um framkvæmdir sem standast kröfur framtíðar. Að lokum tóku Margrét Halldóra Arnarsdóttir, sérfræðingur í rekstri rafveitu hjá Veitum, og Margrét Erlingsdóttir, rafvirki hjá Rafal, umræður um hvernig gera megi orku- og veitugeirann aðlaðandi fyrir fleiri fagkonur, þar á meðal konur í iðn- og framkvæmdastörfum.
KÍO x Veitur













KÍO stendur fyrir risa viðburði þann 3. apríl á Kjarval!
Þetta verður kraftmikill dagur fullur af orku og stemningu – við byrjum á spennandi ráðstefnu kl 13:30 þar sem fram koma frábærir fyrirlesarar og tengjum svo beint í fordrykk og partý fram eftir kvöldi! 🌏🙌
Búðu þig undir spennandi dag en listi yfir fyrirlesara verður birtur á næstu dögum.
Kvöldskemmtun af bestu gerð! – fordrykkur, matur og alvöru partý!
Skráning hefst föstudaginn 7. mars kl. 10:00
‼️ Takmarkaður fjöldi sæta – tryggðu þér miða í tíma!
Miðaverð:
Allur dagurinn & kvöldið – 12.000 kr.
Aðeins ráðstefna – 9.000 kr.
Aðeins fordrykkur og kvöldskemmtun – 9.000 kr.
⚡ Ekki missa af þessu – sjáumst á KÍO deginum! ⚡

Fimmtudaginn 20. febrúar kl. 16:30 mun Steinar Þór Ólafsson fræða okkur um LinkedIn, hvernig við getum aukið sýnileika okkar á miðlinum og byggt upp sterka, faglega ímynd.
Steinar mun fara yfir vel heppnaðar LinkedIn-síður og færslur, greina hvað skilur árangri og kenna okkur hvernig við getum nýtt þessar aðferðir til að ná okkar eigin markmiðum.
📍 Viðburðurinn fer fram í Landsvirkjun, Katrínartúni 2, 5. hæð.
🔷 Takmarkaður sætafjöldi – tryggið ykkur pláss með því að skrá ykkur sem fyrst!

Framundan eru fullt af spennandi viðburðum sem gefa okkur tækifæri til að kynnast betur og efla tengslanetið 🚀
Við hófum árið af krafti hjá HS Orku, þar sem öflugar konur úr fyrirtækinu deildu með okkur dýrmætri reynslu sinni af því að starfa í framlínu á krefjandi tímum. Heiðursgestur viðburðarins var forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og áttum við einlægt og fallegt spjall við hana.
Næsti viðburður verður í boði Landsvirkjunar, þar sem Steinar Þór Ólafsson mun fræða okkur um LinkedIn – hvernig við getum aukið sýnileika okkar á miðlinum og byggt upp sterka og faglega ímynd. Steinar mun einnig fara yfir vel heppnaðar LinkedIn-síður og færslur, greina hvað skilar árangri og kenna okkur hvernig við getum aðlagað þessar aðferðir að okkar eigin markmiðum.
Stjórn KÍÓ hefur í hyggju að halda stjórnmálaviðburð í vor. Þar sem ekki er unnt að fastsetja dagsetningu að svo stöddu, munum við kynna nánari upplýsingar síðar.
Við viljum sérstaklega vekja athygli á KÍÓ deginum þann 3. apríl – takið daginn frá! Meira um það síðar 🎉

Á þessum fyrsta KÍÓ viðburði ársins, fimmtudaginn 30. janúar, býður HS Orka okkur í heimsókn í þeirra nýju húsakynni í Kópavogi.
Við fáum innsýn í fyrirtæki því konur hjá HS Orku ætla að deila með okkur reynslu sinni af því að vera í framlífunni á kræfandi tímum. 🧑🔬
Fyrirtækið fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir og verður Halla Tomasdóttir, forseti Íslands, heiðursgestur í hófnu af því tilefni. 🇮🇸
Nánari upplýsingar og skráning: Tímasetning: 30. janúar kl. 16 Staðsetning: 16. hæð í Turninum við Smáralind í Kópavogi
Hlökkum til að sjá ykkur ⚡
Skráning í commenti hér að neðan 👇

Jólaglimmer KÍO verður haldið á Kjarval fimmtudaginn 28. nóvember frá kl. 17-19. 🎄🥂
Eigum notalega stund saman og eflum tengslin. Dagskrá frá 17-19, boðið verður upp á léttar veitingar frá Nomy, drykki, speed dating og hvatningu!
Við hvetjum þær sem tök hafa á, til að vera áfram eftir að dagskrá lýkur, panta mat og drykki og njóta í góðum hópi orkukvenna.
Við hlökkum til að sjá ykkur! ⚡️

Unnið verður með helstu áskoranir stjórnenda: Framkomu, miðlun upplýsinga, viðbrögð í krísum og tengslamyndun. Um er að ræða þjálfun í krefjandi aðstæðum m.a. fyrir framan myndavélar í myndveri RÚV. Horft verður á upptökur frá æfingum í lok dags í húsnæði Góðra samskipta. Deginum lýkur með sameiginlegum kvöldverði á veitingastað í miðborginni.
Takmarkað sætaframboð! Fyrstu 12 sem skrá sig fá sæti á námskeiðinu 9. október. Ef nægilegur fjöldi er fyrir annað námskeið þá er næstu konum boðið í þeirri röð sem skráningar berast.
Tímasetning: 9. október – allur dagurinn og fram á kvöld því hópurinn fer saman út að borða í lok dags.
Fyrir hverjar: Námskeiðið er fyrir allar KÍO konur sem vilja efla sig í ofangreindi færni.
Verð: 125.000 kr. KÍO mun innheimta námskeiðsgjöld og gefa út kvittanir sem hægt er að nýta t.d. til að sækja um styrk hjá stéttarfélögum. Í skráningarforminu merkið þið hvort reikningurinn á að fara á ykkur eða fyrirtæki. Athugið að skráning er bindandi.
Skráning hefst föstudaginn 27. september kl. 13
Ertu með spurningar? Sendu okkur línu á konuriorkumalum@gmail.com

Við hófum nýtt starfsár með krafti og fengum til okkar Lóu Báru Magnúsdóttur, markaðsstjóra Origo, og Sverrir Heiðar Davíðsson, sérfræðing í hagnýtingu gervigreindar. Viðburðurinn var í boði Orkusölunnar og heppnaðist einstaklega vel.
Fundarefnið var ,,Tækifæri í AI byltingunni – Gervigreind og tengslamyndun.” Erindin voru ákaflega áhugaverð og gagnleg og líflegar umræður sköpuðust í framhaldinu og var áhuginn mikill.
Við i stjórn KÍO erum ótrúlega ánægðar með þennan fyrsta viðburð og hlökkum til framhaldsins með ykkur.
Leyfum myndunum að tala sínu máli.














Opnunarviðburður KÍO er í boði Orkusölunnar og verður þann 18. september í höfuðstöðvum Orkusölunnar Urðarhvarfi 8b.
Viðburðurinn ber yfirskriftina ,,Mín tækifæri í AI byltingunni – Gervigreind og tengslamyndun.”
Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo opnar fundinn á helstu niðurstöðum nýrrar skýrslu IBM ,,Female Leadership in the age of AI.”
Sverrir Heiðar Davíðsson, sérfræðingur í hagnýtingu gervigreindar leiðir okkur í gegnum helstu AI lausnir samtímans, þar á meðal bestu spjallmenni og “text-to-image” tólin sem hægt er að nýta í dag.
Takmarkaður sætafjöldi & því er skráning nauðsynleg:
http://forms.gle/yqeAVSY97FZfbe29A
