Hér starfa líka (alls konar) konur

8. desember 2025

Okkur í stjórn KíO finnst mikilvægt að lyfta orkukonum upp og að stuðla að því að fleiri konur sjái sér framtíð í orkugeiranum.

Í vetur höfum við nýtt samfélagsmiðla, LinkedIn, Instagram og Facebook, til að kynna fjölbreyttan hóp kvenna sem eiga það sameiginlegt að starfa í orkugeiranum eða tengdum greinum. Þar koma fram konur úr öllum áttum, fagkonur í iðngreinum, konur í tæknistörfum og verkfræði, konur í rannsóknum og nýsköpun, í þjónustustörfum, verkefnastjórnun og fjármálum, auk fjölmargra annarra starfa sem endurspegla víðfeðman og lifandi geira.

Við vinnu í þessu verkefni höfum við gert okkur grein fyrir því hversu fjölbreytt tækifærin í orkugeiranum raunverulega eru og vonum að aukinn sýnileiki hvetji enn fleiri konur til að íhuga starfsvettvang í honum. Við vonum líka að verkefnið styrki tengsl og samfélag þeirra kvenna sem starfa þar nú þegar.

Fylgdu Konum í orkumálum á LinkedIn, Instagram og Facebook til að sjá allar sögurnar og kynnast enn fleiri konum í geiranum.

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram