Nú styttist í KÍO daginn og við getum ekki beðið eftir að taka á móti ykkur fimmtudaginn 3. apríl í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals – sjá mynd fyrir neðan.
Skráningarfrestur er liðinn og fullbókað er á árshátíðina – hjartanlegar þakkir fyrir einstakar viðtökur!
Dagskráin er þéttskipuð og full af krafti, samveru og innblæstri:
- 13:30 – Setning og ávarp frá stjórn KÍO
- Opnunarávarp – Jóhann Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Orkugeirinn heillar – Ragna Árnadóttir, verðandi forstjóri Landsnets
- Framkoma og stjórnendaþjálfun – Andrés Jónsson og Þórhallur Gunnarsson, ráðgjafar
- 15:15 – Kaffi og tengslamyndun
- Hvað er svona merkilegt við það? – Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Kolibri
- Hvernig kemst ég í stjórn fyrirtækis? – Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður RARIK
- Að vera rétt manneskja á réttum tíma – Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS
- Mildilegt roast á orkugeirann – Komið gott pod
- 17:15 – Fordrykkur í Landsbankanum
- Örerindi um fjárhagslega heilsu – Eyrún Anna Einarsdóttir, Framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar
- 18:20 – Rölt yfir á Kjarval í mat og drykk
- Ilmupplifun í boði Fischersund
- Uppistand með Snjólaugu Lúðvíksdóttur
- Dans fram eftir kvöldi með DJ Dóru Júlíu
Glæsileg dagskrá með öflugum þátttakendum

Hvar er inngangurinn?
Gengið er inn hægra megin við Vínbúðina:

