Innsýn

Jafnréttisstimpill KÍO

Veturinn 2018–2019 stóðu Konur í orkumálum fyrir útgáfu jafnréttisstimpils fyrir viðburði sem uppfylla fyrirfram skilgreind viðmið um kynjahlutfall hvað varðar framsögu á viðburðum.

Hvernig fær viðburður Jafnréttisstimpil KÍO? Viðburðir sem koma til skoðunar geta verið opnir fundir, vinnustofur og ráðstefnur fyrirtækja og samtaka. Viðburðir sem ná að uppfylla kynjahlutfall hvað varðar framsögu á fundinum (að meðtöldum fundarstjóra) upp á að minnsta kosti 40/60% fá stimpil félagsins. Viðburðir með þremur framsögumönnum eða færri geta því ekki fengið stimpilinn.

Stjórn KÍO upplýsir um þá viðburði sem ná viðmiðinu og gefur út „Viðburður í jafnvægi“. Viðburðarhaldarar geta sjálfir notað Jafnvægisstimpil KÍO og merkið sem honum fylgir, sínum viðburði til framdráttar. Með þessu verkefni viljum við hvetja viðburðahaldara til að huga að jafnvægi kynjanna í skipulagningu viðburða og umbuna þeim sem ná viðmiðinu.

Ábendingar Við hvetjum félagsfólk KÍO og alla sem standa að viðburðum í orkugeiranum til að benda okkur á viðburði sem óskað er eftir að KÍO taki út. Ábendingar má senda á konuriorkumalum@gmail.com eða í skilaboðum á Facebook-síðu félagsins.