Boðað er til aðalfundar Kvenna í orkumálum fimmtudaginn 5. júní kl. 15:30 til 16:00.
Fundurinn er mikilvægur vettvangur til að fara yfir stöðu mála og ræða framtíðarsýn.
Stjórnin var í fyrra kosin til tveggja ára og því ekki um kosningar að ræða í ár.
Fundurinn fer fram í Höfuðstöðinni, Rafstöðvarvegi 1a.
Við ætlum að slá upp sumargleði í leiðinni, með tengslamyndun, tónlist og gleði.
Við vonumst til að sjá sem flest félagsfólk!
👉 Skráning á aðalfund og sumargleði
Aðalfundur kl. 15:30 – 16:00
Dagskrá aðalfundar samkvæmt samþykktum:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Breytingar á samþykktum félagsins (ef einhverjar)
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning skoðunarmanns
- Önnur mál
Tillögur að lagabreytingum skal senda á konuriorkumalum@gmail.com eigi síðar en 1. júní.
🍸Sumargleði kl. 16:00 – 17:00
Að loknum fundi verður boðið upp á léttar veitingar og drykki í fallegu og skapandi umhverfi Höfuðstöðvarinnar.
Við notum tækifærið til að tengjast, spjalla og fagna sumrinu saman.
🎶Tónleikar á torginu kl. 17:00
Um kl 17 röltum við saman niður á torgið við Elliðaárstöð þar sem Veitur halda nýsköpunarfestival og bjóða til tónlistarveislu.
Þar stíga á stokk Herra Hnetusmjör, Una Torfa og Dj. Dóra Júlía
