Hausthristingur KÍÓ fór fram í Höfuðstöðinni þann 10. september og markaði upphafið að nýju starfsári. Það var einstaklega ánægjulegt að koma saman á ný eftir sumarið, hitta kunnugleg andlit og kynnast nýjum konum úr orkugeiranum.
Stemningin var frábær og boðið var upp á einstaklega glæsilegar veitingar frá Iceland Picnic. Kvöldið gaf gott tækifæri til að spjalla, efla tengslanetið og njóta samverunnar í góðum félagsskap.
Við í stjórn KÍÓ erum afar ánægðar með fyrsta viðburð starfsársins og þökkum öllum þeim sem komu og gerðu kvöldið eftirminnilegt. Við hlökkum mikið til komandi viðburða og alls þess sem er framundan hjá KÍÓ í vetur.
Leyfum myndunum að tala sínu máli.



















