Jafnrétti og framtíð orkumála á KÍO deginum 2026

27. mars 2026

KÍO dagurinn var haldinn síðastliðinn fimmtudag og komu þar um 200 konur saman til að ræða jafnrétti, framtíð orkumála og hlutverk kvenna í atvinnulífinu.

Dagurinn var jafnframt hátíðlegur, þar sem félagið fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Á þeim tíma hefur það orðið öflugur vettvangur fyrir konur í orkugeiranum og haft jákvæð áhrif á þróun jafnréttismála, þó enn sé verk að vinna.

Fullur salur á KÍO deginum 2026

Á dagskránni voru fjölbreytt erindi og umræður þar sem meðal annars var fjallað um mikilvægi samvinnu, hugrekkis og markvissra aðgerða til að auka þátttöku kvenna, sérstaklega í sérfræðistörfum og leiðtogahlutverkum. Þá var einnig farið yfir nýjar tölur um stöðu kynjanna í geiranum sem sýna að markviss vinna skilar árangri, meðal annars í framkvæmdastjórnum stærstu orku- og veitufyrirtækja landsins.

Skilaboð dagsins voru skýr

  • Jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér
  • Það krefst markvissra aðgerða og samstillts átaks
  • Það er jafnframt lykilforsenda fyrir árangri, nýsköpun og samkeppnishæfni til framtíðar

KÍO dagurinn í myndum

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram