Ný stjórn KÍO 2026 til 2028

23. júlí 2026

Aðalfundur Kvenna í orkumálum fór fram 4. mars síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur og fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Á fundinum var ný stjórn kjörin og tók hún við störfum í kjölfar KÍO dagsins 19. mars. Ný stjórn tekur nú við því mikilvæga hlutverki að leiða starf félagsins áfram, efla tengslanet kvenna í orkugeiranum og styðja við fjölbreytni, sýnileika og þátttöku kvenna í greininni. Við þökkum fráfarandi stjórn fyrir þeirra framlag og óskum nýrri stjórn velfarnaðar í komandi verkefnum.

Stjórnarformaður: Valdís Guðmundsdóttir

Meðstjórnendur: Hafdís Helga Helgadóttir, Hrefna Björg Gylfadóttir, Ragnhildur Thorlacius, Rósa Jakobsdóttir, Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, Sigurborg Rútsdóttir, Stefanía Sif Stefánsdóttir, Unnur Ylfa Magnúsdóttir og Valgerður B. Eggertsdóttir.

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram