Aðalfundur 2026 og stjórnarkjör

16. febrúar 2026

Boðað er til aðalfundar Kvenna í orkumálum, miðvikudaginn 4.mars kl 12:00 til 13:30.

Fundurinn er mikilvægur vettvangur til að fara yfir stöðu mála og ræða framtíð félagsins.

Á fundinum mun fara fram kjör til stjórnar fyrir starfsárin 2026 til 2028 og framboðsfrestur rennur út á miðnætti 28. febrúar.

Stjórnarseta er frábært tækifæri til að hafa áhrif á þróun orkugeirans, efla sýnileika og stöðu

Við hvetjum allt félagsfólk til að gefa kost á sér, kosið er í öll sæti.

Fundurinn fer fram á Teams.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt samþykktum:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Breytingar á samþykktum félagsins (ef einhverjar)
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning skoðunarmanns
  8. Önnur mál

Tillögur að lagabreytingum skal senda á konuriorkumalum@gmail.com eigi síðar en 27. febrúar.

👉 Skráning á aðalfund 2026 / Registration for the Annual General Meeting 2026

👉Framboð til stjórnar KÍO / Board nominations Women in Energy

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram