Um KÍO

Félag þeirra sem starfa í orku- og veitugeiranum á Íslandi eða hafa áhuga á honum. Opið öllum kynjum og gjaldfrjálst.

Félagið

Konur í orkumálum er félag þeirra sem starfa í orku- og veitugeiranum á Íslandi eða hafa áhuga á honum. Félagið er opið öllum sem telja tilgang félagsins sig varða og vilja stuðla að framgangi þess. Aðild að félaginu er opin öllum kynjum, enda getur það varðað hagsmuni allra að jafna hlutfall kynja í geiranum. Aðild að félaginu er gjaldfrjáls.

Tilgangur

Tilgangur félagsins er að

Efla þátt kvenna í orkumálum og auka áhrif þeirra í orku- og veitugeiranum

Styrkja tengsl þeirra og stuðla að menntun og fræðslu kvenna er varðar orkumál

Vekja athygli á stöðu jafnréttismála og mikilvægi fjölbreytileika innan geirans

Stuðla að bættri vinnustaðamenningu og jöfnum tækifærum allra

Styrktaraðilar

Konur í orkumálum hafa sterka bakhjarla úr atvinnugreininni sem styðja félagið með fjármögnun, aðstöðu og aðstoð með viðburði.

LandsvirkjunOrkuveitan
LandsnetHS OrkaHS VeiturNorðurorkaOrkusalan

Sagan

Undirbúningur að stofnun félagsins hófst í september árið 2015 þegar Harpa Pétursdóttir fékk með sér í lið þær Auði Nönnu Baldvinsdóttur, Elínu Smáradóttur, Helgu Barðadóttur og Petru Steinunni Sveinsdóttur til að skoða stofnun félagsins.

Úr varð að prófa að halda fund þangað sem konur úr geiranum yrðu boðaðar, þann 15. janúar 2016. Upphaflega átti að halda fundinn í matsal Landsvirkjunar, en þegar á þriðja hundrað kvenna hafði boðað komu sína var ákveðið að færa fundinn í Norðurljósasal Hörpu. Á fundinn mættu nærri 200 konur úr geiranum.

Félagið var svo formlega stofnað þann 11. mars 2016 og fyrsta stjórn félagsins kjörin.