Fjölmiðlalykill KÍO 2018

28. september 2018

Helmingi sjaldnar rætt við konur en karla í fréttum um orkumál 2018

Konur eru töluvert sjaldnar viðmælendur en karlar  í fréttum ljósvakamiðla um orkumál, eða í aðeins 30% tilfella. Þetta kynjahlutfall er lægra en almennt gerist í fréttum ljósvakamiðla. Þetta kemur fram í Fjölmiðlalykli fyrir árið 2018, sem félagið Konur í orkumálum hefur birt og sýnir tölfræði um kynjaskiptingu viðmælenda í fréttum ljósvakamiðla um orkumál á árinu 2018. Gögnin eru unnin upp úr greiningu Fjölmiðlavaktar Creditinfo.

Nokkur munur reyndist á kynjaskiptingu viðmælenda fyrri hluta árs og síðari hluta árs. Skýringin liggur í tvöföldun á fréttum sem tengjast Orku náttúrunnar á haustmánuðum og fjölgun kvenviðmælenda vegna málsins. 

Verk að vinna við að rétta stöðuna

„Þetta er fyrsti Fjölmiðlalykillinn sem við gefum út. Það er gríðarlega mikilvægt að varpa ljósi á þessa tölfræði því hún er einskonar spegill orkugeirans. Hún sýnir ásýnd geirans, hverjir eru talsmenn orkumála og fyrirmyndir. Það er mikilvægt að við séum öll meðvituð um þessi ójöfnu hlutföll þar sem verulega hallar á kvenviðmælendur og því er hér verk að vinna við að rétta þessa stöðu af.“ segir Harpa Þórunn Pétursdóttir, formaður Kvenna í orkumálum.

Ímynd orkumála er mikilvæg

„Við stefnum að því að gefa Fjölmiðlalykilinn út reglulega og fylgjast þannig með þróun mála. Hver sá sem tjáir sig um ákveðið málefni verður sjálfkrafa hluti af ímynd málaflokksins. Við þurfum fleiri kvenfyrirmyndir innan orkugeirans og það er mikilvægt að rætt sé við bæði konur og karla þegar orkumál eru til umfjöllunar.“ segir Íris Baldursdóttir, stjórnarkona Kvenna í orkumálum.

Umræðan byggi á gögnum

„Við hjá Creditinfo erum stolt af því að taka þátt í vinnslu Fjölmiðlalykilsins,“ segir Dagný Dögg Franklínsdóttir forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Creditinfo. „Tilgangur Creditinfo er að miðla traustum upplýsingum til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku. Það er mikilvægt að varpa ljósi á sýnileika kvenna í fjölmiðlum og það skiptir miklu máli að umræða um slík mál byggi á traustum gögnum.“

Um Konur í orkumálum

Konur í orkumálum er félag kvenna í orkugeiranum og eru félagskonur- og menn úr aðildarfélögum Samorku en einnig öðrum fyrirtækjum og stofnunum svo sem háskólaumhverfinu, rannsóknarstofnunum og ráðgjafastofum af ýmsum toga.

Um Creditinfo

Creditinfo er með starfsemi í fjórum heimsálfum og starfa um 400 manns hjá félaginu. Creditinfo hefur skapað sér sterka stöðu með því að veita aðgang að lánshæfisupplýsingum þar sem aðgengi að lánsfé er oft torsótt, meðal annars í Afríku, Eystrasaltslöndunum og í Austur Evrópu. Félagið hefur alþjóðleg starfsréttindi til að reka og þróa hugbúnaðarkerfi og viðskiptalausnir fyrir áhættustýringu og rekur stærsta grunn viðskipta- og fyrirtækjaupplýsinga á Íslandi. Fjölmiðlavakt Creditinfo vaktar umfjöllun í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og netmiðlum.

Niðurstöðurnar má nálgast hér

crossmenuarrow-downarrow-leftarrow-right linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram